Girls Just Wanna Have Fun!

14.02.2008 14:48:38 / María Rún

Nýtt og betra blogg!!!

Jæja við erum komnar með nóg af blog.central og fluttum okkur yfir á ...

www.utanbaejarstulkur.bloggar.is

tékk it görls!!!
kv. María Rún og Bjarney Sif


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 20:18:37 / Anna Guðrún

Tjekkið á þessu stelpur :D

 

Til hamingju með trúlofunina Arna og Otri

;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 00:51:59 / Kittý

Sigga og Solla!!

þið egið eftir að skjóta á kyn utanbæjarbarnanna sem að eru að koma í heiminn á þessu ári!!!

Endilega að pósta því inn..

Miklir vinningar í boði .. eða hvað??

og shitt hvað mér er farið að langa í humar!!!!!

Kv Kittý - að fara að sofa!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 18:46:39 / Arna Hjartardóttir

Hipp hopp

Síðasta helgi var ein besta helgi sem ég hef átt lengi.

Það var s.s. óvissuferð/partý í vinnunni.

  • Fórum í heimsókn á slökvistöðina. Fórum inn í reykfyllt herbergi og jii fékk ég innilokunarkennd. Klifruðum svo niður brunastigann af þakinu og ég sem hélt að ég væri alls ekki lofthrædd stóð ekki alveg á sama. Fengum svo að fara ferð upp í körfunni upp 32 metra og þvílíka útsýnið yfir borgina. Fengum líka að fara einn rúnt á slökkvibílnum, svaka sport :)
  • Spiluðum svo blak við slökkvikarlana og fengum að æfa í æfingasalnum þeirra
  • Fórum svo í hipp hopp tíma. Hef sjaldan hlegið svona mikið shjitt. Það voru nefnilega nokkrir strákar/menn með og það var bara fyndið að sjá þá reyna að ná sporunum, ekki það að við konurnar og ekki minnst gömlu konurnar hefðum verið neitt skárri :) bara gaman
  • Svo var bara partý og endaði yngsta kynslóðin niðrí bæ.

Svo var bara eytt laugardeginum í að undirbúa partý sem Unnur hélt

  • Elduðum litlar pizzur með framandi áleggi, avokata sósu, salsasósu ofl.
  • Enduðum svo niðrí í bæ.

Endaði svo helgina á að fara á skíði í bæ sem er 2 tíma héðan.

  • Fórum nokkur saman á 2 bílum og ég uppskar mjög skemmtilega bílferð. Ein vinkona Unnar er bara kostuleg, endalaust hægt að hlæja að henni.
  • Uppskar líka þreytu og aumleika í fótunum á mánudeginum þar sem ég hef ekki farið á skíði í 7 ár.
  • Var smeik fyrstu 2 ferðirnar en kom svo sjálfri mér á óvart í restina, með því að þeytast niður brekkurnar á gífurlegum hraða. Tók mig út eins og þeir allra bestu á ólympíuleikunu, vantaði allavega ekki mikið uppá ;)
  • Fékk svo þennan dýrindis hamborgara á leiðinni heim, sem var eitthvað annað en þetta óg*** burger king

Annars var ég í miðverknámsmati í dag og fékk gott mat og er enn sem komið er með S :)

Otri kemur svo á morgun og er ég með þétta dagskrá á planinu ;) 


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 22:10:27 / Dagrún Ösp

Pirrpirr

Arg mig langar til að öskra:klikk:

Það klessti einhver á bílinn minn... og vitiði hvar!!?? Fyrir utan hjá mömmu og pabba og fór svo bara!!! díses það keyra svona 7 bílar þarna á dag! ekki hélt ég að þetta væri hægt... en það er víst allt hægt... Brettið vinstra megin að framan beyglað!!!

En ég hef nú einn grunaðann... og tók mynd af bílnum og nr á honum:haha: Lét lögguna svo fá myndirnar og hún ætlar að fara að mæla hvort hæðin á bílnum passi í beygluna á mínum bíl.. híhí vonandi passar það... en annars stefnir allt í það að ég verði 50.000 kr fátækari, sem er dálítið pirrandi:cry:

En ég get huggað mig við það að ég og Arnar erum að fara til Flórída 16.maí... vívíví... fullt af búðum, sól og Disney garðar í 12 daga... bara sæla8)

Og það er nú gott að það er ekki erfitt að finna dagsetningu fyrir okkur uppteknu kellingarnar! Stefnir samt allt í að margir komist 1. mars;) Arna, Anna Guðrún, María Rún, Kittý, Álfhildur og ég komumst allavega... en hvernig er með...

Bjarney?

Sollu?

Söru?

Kristínu?

Hlín?

Hmm vona að það komist allar:)


» 14 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 13:33:16 / Álfhildur

32 komment....

Jæja ég var orðin ógeðslega leið á að skrolla niður 32 komment!

Í síðustu færslu var 1. mars dagurinn sem margar komast, eftir miklar og heitar umræður

Látið vita hér hvort þið komist 1. mars 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 13:14:07 / María Rún

Humar?

Sælar

Hvað segiði..eigum við að negla laugardaginn 16.febrúar? Fara allar saman á Fjöruborðið á Stokkseyri og éta á okkur gat.. bruna síðan á Selfoss og planta okkur á Kaffi Krús og súpa og spjalla og kannski borða meira?:)

 

Endilega kommentiði á dagsetninguna sem fyrst svo við getum ákveðið þetta!


» 32 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 17:12:26 / Arna Hjartardóttir

Vika 4

Hæ hæ

Fór á hundasleða á laugardaginn það var æði, það var geggjað veður fórum 12 km langa leið þar sem ég fékk að stýra sleðanum hálfa leiðina og sat í honum hálfa leiðina. Þegar við komum til baka var búið að kveikja varðeld og við fengum te og köku. Allt saman voða rómó...vantaði bara kærastann :)

Unnur bauð mér í lasagnia með því ,,skilyrði" að ég að hjálpaði henni að setja saman náttborð sem hún var að fá sér...það var hægara sagt en gert. Vorum þrjár að því og það tók um 1 1/2 en átti að taka klst fyrir tvo. Týpiskar stelpur! 

Fékk mér 2 klst göngutúr á sunnudaginn í leit að opinni búð. (Það er allt lokað hér á sunnudöum) Mig langaði svo í eitthvað að drekka, gafst ekki upp og fann örugglega einu opnu búðina á eyjunni á endanum og fékk gatorade að drekka :) Var voða hamingjusöm með það.

Ætluðum að fara í bíó í gær stóðum í röð í c.a. hálftíma og svo var uppselt á myndina, frekar svekkjandi þegar maður er búin að ákveða að fara í bíó og langar að sjá myndina. Það er s.s. 1 bíó hér með reyndar 5 sölum fyrir um 64. þús manns, finnst það frekar lítið eða kannski er það það ekki??

Það gengur alltaf betur og betur að tala við sjúklingana og skrifa norskuna er voða hamingjusöm með það en hefði viljað vera búin að læra fleiri orð og fá meiri orðaforða núna en ég á nú enn eftir að vera í 5 vikur þannig að vonandi læri ég meira....er búin að læra fullt í sambandi við sjúkraþjálfun og finnst mér eiginlega bara ganga mjög vel (Var pínu hrædd um að falla í verknáminu áður en ég kom út, var svo hrædd um tungumálaörðuleika og að það væri svo erfitt að sýna hvað maður kynni á öðru tungumáli...en það hefur bara gengið vel, að ég held að minnsta kosti)

Vona bara að það gangi vel með allar bumburnar og að Kittý fari nú að hressast....reyndar vona ég nú að það gangi vel hjá ykkur hinum líka :)

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 15:14:34 / Kittý

Einn góður draumur!!

Já ég er nú þekkt fyrir að dreyma eithverja bölvaða steypu og þess á milli dreymir mér að eithver sé óléttur eða að það sé keyrt á mig, sem gerist svo daginn eftir.. Ekki kanski óléttan.. eða hver veit ;) hehe

En í nótt dreymdi mig að ég ætti gæludýr.. sem er kanski ekki frásögufærandi.. nema að gæludýrið var Belja.. (ætla ekki að skrifa Kýr, Kú, vegna þess að ég man aldrei hvort er rétt) Ég var s.s í skátaútilegu og var að stjórna henni með Beljuna með mér, ótrúlega fallega litla belju sem að var eginlega hvít með gulbrúnum blettum. (mjög erfitt að útskýra litinn) Ég s.s gisti í einu herberginu í húsinu MEÐ Beljuni og hún kúrði við hliðina á mér eins og köttur! Svo daginn eftir þá var eithver póstaleikur og ég var á fullu að skipuleggja og gleymdi beljunni minni eithverstaðar, fór svo að leita af henni og rölti á milli pósta og fann svo beljuna mína. Fagnaðarlætin voru ekki lítil þegar hún sá mig. Hoppaði svona eins og þegar beljunum er hleypt út á vorin og ég knúsaði hana eins og bangsa..

Já ég hélt að ég myndi DREPAST úr hlátri þegar ég hrindi í mömmu og sagði henni hvað mig hefði dreymt!! Shitt.. þetta er eginlega besti draumur sem að mér hefur dreymt hingað til!

En það er spurning hvort að þetta þýði ekki að ég verði bóndakona.. hahahhahahahha

Hvað með ykkur hinar.. og þá sérstaklega þær óléttu.. er ykkur ekkert að dreyma bölvaða steypu þessa dagana..

Kv Kittý - ennþá lasin :(


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 19:11:39 / Álfhildur

Smá auglýsing :)

Körfubolti - Úrvalsdeild kvenna Iceland Express leikur
Laugardaginn 26. janúar kl. 16:00 í íþróttahöllinni í Hveragerði 
Hamar - Fjölnir
Dregið verður úr aðgöngumiðum í hálfleik, ferðavinningur með 
Iceland Express, gildir á alla áfangastaði fyrir tvo
 - með flugvallasköttum 
Kjörís býður upp á ís í hálfleik
Mætum öll og styðjum stelpurnar
okkar til sigurs!!! 

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 08:09:55 / Álfhildur

Afmæli Maríu :)

Hún á afmæli í dag... Hún á afmæli í dag.. Hún á afmæli hún María.. Hún á afmæli í dag!

Jæja þá er '85 gella númer tvö orðin 23 ára... alveg skelfilega gamalt að mínu mati, ég ætla að reyna að njóta hvers dags sem 22 ára næstu tvo mánuði

En takk fyrir gærkvöldið og ég treysti því að Sara Huld komi með einhverja færslu hérna með mynd og svona af gellunni því ég bara nenni því ekki og hef ekki jafn mikinn áhuga á ljósmyndum og Sara Huld myndavélaskelfir....

En stelpur eitt að lokum: Vissuð þið að það var ég sem kom jólasveinahúfum í tísku? 

Álfhildur FatBoy kveður


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 13:30:04 / María Rún

ATH

Sælar

Kittý er lasin og getur því trúlega ekki haldið stelpó á morgun.. Því þurfum við að finna annan stað ef við ætlum að hittast:) ..Mér dettur enginn staður í hug nema hjá Dagrúnu..þar sem það er best að halda í Hveragerði út af því að Álfhildur og Bjarney komast ekki fyrren klukkan hálf 10 og færu því tæpast að keyra í Rvk.. Arna er svo nottla úti og Kittý kemur trúlega ekki og eitthvað minnir mig að Solla hafi ekki komist..er samt ekki alveg sjor! Þannig að þetta yrði heldur fámennt ef við yrðum í Rvk!

Dagrún..bjargaru þessu??;) ..við getum líka allar bara komið með eitthvað með okkur.. nammipoka, snakk, osta, köku, heitan rétt eða vott ever.. það væri ekki vitlaus hugmynd þar sem það lendir svo oft á þeim sömu að halda..þá deilist kostnaðurinn:) Getum þá parað okkur saman 2 og 2 með 1 rétt eða eitthvað soleis.

Hvað segiði um þetta??? og hverjar ætla að mæta?

Vonast til að sjá ykkur á morgun...

kv. María Rún

 


» 19 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 11:57:15 / Kittý

Hver anskotinn!!!

Jæja stelpur mínar..

Ég óska hér með eftir að þið réttið mér hjálparhönd í að finna hellv... asnan sem að keyrði á bílinn okkar og stakk af á sunnudaginn!!

Ég var s.s í sundi í góðum gír og slakaði súper vel á eftir að hafa dansað í tvo tíma á þorrablóti kvöldið áður. Lagði fyrir aftan dökk bláan VW passat/boru sem að var lagt mjög asnalega á sundlaugarplaninu. En ég lagði samt nógu langt í burtu frá honum til þess að hann ætti ekki að þurfa að koma nálægt bílnum mínum. En það tókst ekki þar sem að þegar ég kom úr sundi er þvílík beygla á bílstjórahurðinni á skódanum og að öllum líkindum hefur það verið þessi bíll. Ég varð allveg brjál og eina sem að ég "græddi" á þessu var hálsbólga og kvef vegna þess að þegar ég stóð þarna úti að bíða eftir lögguni þá fraus á mér hárið og mér var geðveikt kalt og núna er ég bara að drepast úr hálsbólgu !! ARG!! OG.. skódinn er ekki einu sinni árs gamall!!!

Þannig að ef að þið vitið um eithvern sem að á svona bíl og hafi verið í sundi milli 15:30 og 16:30 á sunnudaginn þá megiði allveg láta mig vita!!!

Kv Kittý - PIRRUÐ!!!!!!!!


» 13 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 16:36:45 / Arna Hjartardóttir

Tromsö

heia alle sammen

 Enn er allt fínt að frétta mér.

Líkar ægilega vel í vinnunni og var að koma úr sundi þar sem ég var með 3 hópa af fötluðum börnum í vatnsleikfimi, bara gaman en ég var alveg komin með rúsínur og döðlur á hendurnar eftir 2 og hálfan tíma ofaní :)

Í vinnunni fer ég mikið heim til fólks og í skóla og leikskóla að hitta börn sem er svolítið öðruvísi en heima en það er gaman að sjá hvernig þetta gengur fyrir sig hér.

Fór á djammið síðustu helgi með 2 dönskum stelpum hérna Trinu og Stinu, það var fínt hittum m.a. 2 menn og annar kunni að segja: Gleðilega páska og hinn kunni að segja: Komum heim að ríða :) Er að fara aftur út núna á djammið með Unni og vinkonum. Það er nefnilega mikið fjör núna í bænum útaf filmfestivalinu sem er í gangi hér núna. Er einmitt að fara á 2 myndir um helgina.

 Er komin með nýjan nágranna það var að koma sænskur strákur í herbergið við hliðina á mér og 1 af 3 hvítu hérna á hæðinni!

Annars er stefnan tekin á hundasleðaferð næstu helgi og Þorrablót hjá Íslendingafélaginu hér í febrúar.

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 15:53:28 / Álfhildur

María VIP gella

Vissuð þið að María er ekki hætt í djamminu þó hún sé preggó, nei ó nei... Hún ætlar sér að fara VIP á Nýdönsk ballið!!! kíkið á þetta

http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=304148970


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 44
Leitarbox

Klukkan
Pakka nidur g�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1070 dögum
Listen...
Leitarvefir
Myndasöfn